top of page

„Stillt og dugleg. Þegar einhverfan er ósýnileg.“

Fræðslan fjallar um möskun (e. masking), þegar einhverf börn fela einkenni sín eða laga hegðun sína að væntingum umhverfisins. Sérstök áhersla er á börn sem lítið fer fyrir og virðast standa sig vel þrátt fyrir álag. Fjallað verður um skynálag, sjálfsmynd og muninn á sýnilegri hegðun og líðan barns.

​

Markmiðið er að efla skilning foreldra og starfsfólks skóla á stuðningsþörfum sem geta farið fram hjá umhverfinu. Í erindunum verður rætt hvernig hlusta megi á upplifun barnsins, nýta samtal heimilis og skóla og koma auga á aðstæður sem valda álagi. Þannig er stefnt að aukinni þekkingu sem nýtist í daglegu samneyti við börnin.

​

Fræðslan er unnin í samstarfi við Einhverfusamtökin. 

Hagnýtar upplýsingar

„Stillt og dugleg - þegar einhverfan er ósýnileg“ er fræðslu- og forvarnarverkefni fyrir skóla og foreldrafélög.

Lengd fyrirlesturs með umræðum er um 40-45 mínútur. 

Starfsfólk skóla

Kennarar, stuðningsfulltrúar og annað starfsfólk skóla

Foreldra

Foreldrafélög skóla og leikskóla

Um fyrirlesarann

att.Qg8gpqtttCOAyMLrMyr8LYtE--XE9Bb0Rn7FwK6YryY.jpg

Ingibjörg Guðlaug er stofnandi og framkvæmdastjóri Mannkenndar. Hún er móðir einhverfrar og langveikrar stúlku með fötlun. Ingibjörg Guðlaug brennur fyrir málefnum fatlaðra og er með rúmlega 12 ára reynslu af réttindabaráttu fyrir dóttur sína sem hún hefur gert að aðalstarfi sínu.  

​

Hún hefur yfir 15 ára reynslu af mannauðsmálum, ráðgjöf og stjórnun á Íslandi og í Þýskalandi. Hún er með B.A. í stjórnmálafræði, M.Sc. í mannauðsstjórnun og diplómanám á meistarastigi í jákvæðri sálfræði, auk menntunar í stjórnendamarkþjálfun.

 

Persónuleg reynsla hennar, fagleg þekking og rík réttlætiskennd eru drifkrafturinn í starfi Mannkenndar.

bottom of page