top of page
FullLogo_Transparent (1).png
48f08c2f-0a67-4bad-9213-7d233d3c392e.png

WELCOME! WE WILL TAKE OFF SOON!

Lísa er nýflutt til Lóuvíkur og kvíðir því að byrja í nýjum skóla. Þá kynnist hún Líó, geimrefi sem er strandaglópur á jörðinni. Bæði þurfa þau að fóta sig í ókunnugu umhverfi og með þeim myndast óvænt vinátta.

Hlýleg og litrík myndasaga um einhverfu, vináttu og ólíkar leiðir til að upplifa heiminn.

​

Bókin er gefin út í samstarfi við Einhverfusamtökin. 

LisaLio_Inlay 43
LisaLio_Inlay 44
LisaLio_Inlay 48
LisaLio_Inlay 57
LisaLio_Inlay 60

Gefum öllum börnum pláss í bókum!

Mannkennd gefur út barnabækur þar sem fötluð börn fá að vera í aðalhlutverki, með styrkleika sína, drauma og áskoranir.

​

Við viljum að börn geti fundið eigin reynslu í sögum og um leið kynnst lífi annarra. Þannig geta bækur bæði verið spegill og gluggi — og opnað samtal um fjölbreytileika, skilning og samkennd.

Fræðsla

Stillt og dugleg. Þegar einhverfan er ósýnileg.​

​

Mannkennd býður upp á fræðslu fyrir starfsfólk skóla og foreldrafélög um einhverf börn sem lítið fer fyrir og virðast standa sig vel, þótt vanlíðan og stuðningsþarfir fari fram hjá umhverfinu.

​

Fjallað er um möskun — þegar börn fela einkenni sín eða laga hegðun sína að væntingum umhverfisins — ásamt skynálagi og muninum á sýnilegri hegðun og líðan barns. Áhersla er á að hlusta á upplifun barnanna, koma auga á aðstæður sem valda álagi og efla samtal heimilis og skóla.

​

Fræðslan er unnin í samstarfi við Einhverfusamtökin og tengist bókinni Lísa og Líó – stelpan og geimrefurinn. Markmiðið er að efla skilning á þörfum barnanna og stuðla að viðeigandi stuðningi.

bottom of page