Bókin fjallar um Lísu og geimrefinn Lio. Lísa er nýflutt með mömmu sinni í nýjan bæ og þarf að byrja í nýjum skóla. Fyrir einhverfa stelpu sem sækir í öryggi, fasta rútínu og kunnuglegt umhverfi er þetta hræðilegt!
Á leiðinni í skólann fyrsta skóladaginn hittir Lísa geimrefinn Lio sem strandaði á jörðinni. Lio líður eins framandi á jörðinni og Lísu. Saman takast þau á við óvissu og nýjar aðstæður.
Höfundur bókarinnar, Daniela Schreiter er þýskur myndasöguhöfundur og teiknari. Hún er sjálf einhverf og hefur skrifað fleiri myndasögur um hvernig það er að hafa öðruvísi sýn á heiminn, skynjun og tilfinningar. Verk hennar einkennast af næmni, húmor og virðingu fyrir ólíkri upplifun barna.
top of page
bottom of page
